Fótbolti

UEFA setur pressu á City Football Group

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Manchester City er ríkjandi meistari en mun ekki verja titilinn í ár.
Manchester City er ríkjandi meistari en mun ekki verja titilinn í ár. Rob Newell - CameraSport via Getty Images

UEFA hefur sett City Football Group tvo valkosti fyrir næsta tímabil. Ef ekki verður farið eftir fyrirmælum fyrir 3. júní verður annað hvort Manchester City eða Girona lækkað um tign og látið spila í Evrópudeildinni á næsta ári.

City Football Group (CFG) er móðurfélag Manchester City og á 47 prósenta hlut í Girona. Samkvæmt reglum UEFA mega tvö félög undir sama eignarhaldi ekki leika í sömu keppni en bæði félög hafa tryggt sér þátttökurétt í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili. 

Sambærileg mál á undanförnum árum

Red Bull breytti eignarhaldi sínu á RB Leipzig fyrir tímabilið 2017­-18 svo félagið gæti tekið þátt í Meistaradeildinni samhliða RB Salzburg.

Red Bird Capital, sem á ítalska félagið AC Milan og franska félagið Toulouse, þurfti að sanna fyrir UEFA í fyrra að félögin væru rekin með algjörlega aðskildum hætti.

Vandamál CFG er öllu stærra þar sem þeim hefur ekki tekist að sanna sérstöðu eða fjárhagslegt sjálfstæði fyrir UEFA.

Möguleikar í stöðunni

City Football Group standa því tveir möguleikar til boða. 

Þröskuldur UEFA miðast við 30 prósent eignarhlut og CFG gæti því annars vegar gætu þeir selt frá sér 17 prósent af 47 prósenta eignarhluti félagsins í Girona.

Eða fært allan eignarhlut félagsins í sjálfstæðan fjárvörslusjóð skipaðan af UEFA. CFG ætti þannig áfram 47 prósent hlut í félaginu en myndi afsala sér stjórn og ákvarðanatöku.

Fylgi CFG ekki settum reglum fyrir 3. júní verður annað hvort Girona eða Man. City að leika í Evrópudeildinni á næsta tímabili.

Fari svo að Man. City verði Englandsmeistari fá þeir Meistaradeildarsætið, en ef Man. City og Girona enda bæði í 2. sæti, sem er enn möguleiki, þá fær Girona Meistaradeildarsætið sökum þess að spænska deildin er hærra sett á styrkleikalista UEFA.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×